Velja

Seldu með fasteignasala

frá 279.000 kr.

Seldu sjálf/ur

frá 99.000 kr.

Velja
Grunnur
99.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Plús
164.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Gull
279.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Platína
489.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Pakkar
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Grunnur
99.000 kr. 
Plús
164.000 kr.
Gull
279.000 kr.
Platína
489.000 kr.

*Öll nauðsynleg skjöl og leiðbeiningar eru innifalin í rafrænu kerfi

**Löggiltur fasteignasali ber ábyrgð á frágangi kaupsamnings og afsals

Kaupstaður kynnir
Skoða nánar
Skeljagrandi 17, 107 Reykjavíkurborg
Skeljagrandi :Fallegt 319,8 fm einbýli með bílskúr og möguleika á aukaíbúð við Skeljagranda 17 í vesturbænum á mörkum Reykjavíkur og Seltjarnarness. Eignin skiptist þannig að aðalhæðin með bílskúr er 123,6 fm, efri hæð 85,3 fm og kjallarinn 110,9 fm, samtals 319,8 fm skv. Þjóðskrá.Húsið er á 3 hæðum, kjallara, aðalhæð og efrihæð. Einbýlishúsið er í lokuðum botlanga. Húsið var mikið endurnýjað sumarið 2021 og 2022. Kjallari: Sér inngangur um tröppur.Flísalagður gangur með parketlögðum stiga upp á miðhæð (sem mætti loka). Flísalagt árið 2022.Stofa: Stór stofa með gluggum. Parket á gólfi. (Notað sem æfingarsalur).Herbergi: Parket á gólfi. Herbergið er tengt við stofuna.Herbergi/eldhús: Ný eldhúsinnrétting frá 2022 og gólfið var flísalagt árið 2021. Tengi fyrir ofn og háf til staðar.Herbergi: Parketlagt árið 2021. Með gluggum.Baðherbergi: Með sturtu. Baðherbergið var endurnýjað 2022, og voru nýjar gólf- og veggflísar flagðar, nýr ofn, nýtt salerni og ný baðinnrétting sett inn. Með gluggum.Geymsla: Er steypt. Með hillum.Miðhæð:Forstofa: Flísalagt 2021. Með fatahengi.Gestasnyrting : Endurnýjað 2021, nýjar gólf- og veggflísar lagðar, nýr ofn, nýtt salerni og ný baðinnrétting sett inn. Með gluggum.Eldhús: Með innbyggðum Miele tækjum; uppþvottavél, gufuofni, blástursofni, ísskáp (Samsung) og helluborði. Góðir gluggar. Gólfið parkettlagt 2021.Stofa: Rúmgóð stofa og borðstofa/sólstofa með dyrum út á suðurpall.Efrihæð: Fallegur og breiður parketlagður stigi upp á efrihæð og niður í kjallara. Parketlagt 2021.Herbergisgangur: Parketlagt 2021.Baðherbergi: Með baðkar og sturtu. Flísalagt í hólf og gólf. Með gluggum. Nýtt salerni sett inn 2021.Hjónaherbergi: Með stórum gluggum og útgengið er út á suðursvalir. Gólfið parketlagt 2021.Herbergi: Með stórar svalir til vesturs. Gólfið parketlagt 2021.Herbergi: Gólfið parketlagt 2021. Gluggar snúa í austur. Notast sem barnaherbergi.Herbergi: : Gólfið parketlagt 2021. Gluggar snúa í austur. Notast sem leikherbergi.Þvottahús : Gólfið var flísalagt 2021. Með pláss og lagnir fyrir þvottavél og þurrkara. Með glugga.Innbyggður bílskúr á aðalhæð sem opnast á stórt upphitað hellulagt plan. Með glugga.Innbyggð skúr: Lítið geymslurými með hillum sem opnast út í garðinn.Lóð : Er á grasifleti, með nokkrum trjám/runnum. Suður pallur (gengið út frá sólstofu) og skjólveggur með 6 manna rafmagnsheitumpotti. Pallurinn og skjólvegurinn voru byggð sumarið 2023 og nýr heiturpottur var lagður ofaná pallinn þá.Framan við húsið er sameiginleg grasflöt með fánastöng.Einstaklega falleg eign á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Göngufæri í skóla og leikskóla.Svalir: 2 svalir , úr svefnherbergjum sem snúa til suður og vesturs.Hleðslustöð fyrir bíla
Einbýlishús
8
319.8m²
209.000.000 kr.
Skoða nánar
Grænaborg 4, 190 Sveitarfélagið Vogar
Kaupstaður fasteignasala kynnir stórglæsilegar umhverfisvænar íbúðir í VogumSmellið hér til að fara á sölusíðuÍbúð 201, er falleg 137,9fm íbúð á 2.hæð með stórum svölum til suðvesturs, íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, ljósgrátt, matt harðparket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar með marmaraáferð á votrýmum.Nánari lýsingAnddyri: Með stórum fataskáp.Stofa: Björt og rúmgóð með útgent á stórar svalir.Eldhús: Innréttingar í eldhúsi eru hvítar og eru sérsmíðaðar með glans áferð.Borðplata er með ljósri marmaraáferð.Baðherbergi: Rúmgott með sturtu og ljósum flísum með marmaraáferð á gólfi og veggjum.Baðherbergi 2: Inn af hjónaherbergi með sturtu og ljósum flísum með marmaraáferð á gólfi og veggjum.Svefnherbergi 1: Rúmgott með góðum skápum, útgengt á svalir.Svefnherbergi númer 2: Með skápum.Svefnherbergi númer 3: Með skápum.Geymsla og Þvottahús innan íbúðar.Loftræsting: Loftræsting fylgir öllum íbúðum sem kemur í veg fyrir rakamyndun og heldur loftflæði íbúðar alltaf fersku.Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með endurvarmvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum.Hver íbúð er með sjálfstætt kerfi, sem stýrt er með skjá á einfaldan hátt.Húsið stendur á steinsteyptum sökkli og með steinsteyptri botnplötu. Útveggir eru úr stálprófílum sem klæddir eru sementsplötum að utan og gifsplötum að innan.Gluggar og hurðar eru frá þýska framleiðandanum REHAU, eru úr hágæða PVC.Þrefalt gler er í gluggum.
Íbúðareign
4
137.9m²
100.600.000 kr.
Skoða nánar
Grænaborg 2A, 190 Sveitarfélagið Vogar
Kaupstaður fasteignasala kynnir stórglæsilegar umhverfisvænar íbúðir í VogumSmellið hér til að fara á sölusíðuÍbúð 101, er falleg 130,2fm íbúð á 1.hæð með stóra verönd til suðvesturs, íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, ljóst, matt harðparket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar með marmaraáferð á votrýmum.Nánari lýsingAnddyri: Með fataskáp.Stofa: Björt og rúmgóð með útgent á stóra verönd.Eldhús: Innréttingar í eldhúsi eru hvítar og eru sérsmíðaðar með glans áferð.Borðplata er með ljósri marmaraáferð.Baðherbergi: Rúmgott með sturtu og ljósum flísum með marmaraáferð á gólfi og veggjum.Svefnherbergi 1: Rúmgott með góðum skápum, útgengt á verönd.Svefnherbergi númer 2: Rúmgott með skápum.Geymsla og Þvottahús innan íbúðar.Loftræsting: Loftræsting fylgir öllum íbúðum sem kemur í veg fyrir rakamyndun og heldur loftflæði íbúðar alltaf fersku.Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með endurvarmvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum.Hver íbúð er með sjálfstætt kerfi, sem stýrt er með skjá á einfaldan hátt.Húsið stendur á steinsteyptum sökkli og með steinsteyptri botnplötu. Útveggir eru úr stálprófílum sem klæddir eru sementsplötum að utan og gifsplötum að innan.Gluggar og hurðar eru frá þýska framleiðandanum REHAU, eru úr hágæða PVC.Þrefalt gler er í gluggum.
Íbúðareign
3
130.2m²
94.900.000 kr.
Skoða nánar
Háeyrarvellir 8, 820 Sveitarfélagið Árborg
Kaupstaður fasteignasala kynnir sérstaklega glæsilegt og vel hannað einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni.Aðkoman að húsinu er hugguleg í alla staði og nálægt sjávarsíðunni. Ekið er inn í innkeyrslu að bílskúr, þar sem inngangur í húsið er á hægri hönd og flísalögð stétt er fyrir framan. Umhverfis húsið er vel hannaður og hirtur garður með þremur stórum sólpöllum samtals á annan hundrað fermetrum. Liggja þeir í vestur, suður og austur, þar sem heitur pottur er staðsettur og vel afgirtur með bílskúrinn húsið og háa veggi allt í kring. Í garðinum er einnig lítill 6-7 fm. kofi sem hentar vel fyrir garðhúsgögn eða leik barna. Síðan stór og vel innréttaður bílskúr með vaski og lítilli innréttingu.Húsið hefur verið endurnýjað nánast að öllu leyti á síðustu tveimur árum. Gluggi á austurgafli þarf að endurnýja einnig lokuna á arninum sem er biluð .Gengið er inn í anddyri á hægri hönd frá innkeyrslu inn í fallegt hol, en þaðan til vinstri er staðsett stórt og vel innréttað þvottahús og í framhaldi af því er útgangi á pallinn með heitum potti. Í anddyrinu er gott fatahengi og inngangur að gesta salerni. Síðan er farið inn í íbúðina sjálfa þar sem stór og glæsileg stofa með stórum arinn og nýlegt innréttað eldhúsi á hægri hönd, þar sem flest eldhústækin eru innbyggð í sérhannaðri innréttingu.Þegar farið er á vinstri hönd inn í íbúðina er gengið inn gang þar sem er stórt og vel innréttað baðherbergi, tvö stór svefnherbergi og innréttuð sér skrifstofa og sér fataherbergi. Í heildina eru skráð fimm svefnherbergi í húsinu samkvæmt teikningum en eru 4 í dag. Nýlegt parkett er á öllum gólfum nema anddyri, þvottahúsi og baðherbergi þar sem flísar þekja gólfið.Frekari upplýsingar í síma 454-0000 eða netfang [email protected]
Einbýlishús
6
200.8m²
99.800.000 kr.
Skoða nánar
Tjarnarbraut 21, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður
Um er að ræða virðulegt einbýlishús á tveimur hæðum á besta stað við lækinn í Hafnarfirði. Hvor hæð nýtist sem sér íbúð en húsið er skráð á eitt fastanúmer. Í dag er eignin nýtt undir herbergjaútleigu og eru tekjur em koma inn á eignina töluverðar, nánar tiltekið á bilinu 700.000,- til 850.000,- kr. á mánuði. Neðri hæð: Sér inngangur er að neðri hæðinni. Flísalagt eldhús með snyrtilegri innréttingu er strax til vinstri við flísalagt anddyri. Parketlagður gangur er inn í eignina. Þvottahús er á neðri hæð og er merkt geymsla sbr. teikningu. Gólfið er epoxy málað og með útgang út í baklóð eignarinnar. Skráður bílskúr á teikningum er innréttaður og nýttur sem herbergi í útleigu. Baðherbergi á neðri hæð er nýlega tekið í gegn og flísalagt með snyrtilegri innréttingu og sturtu. Þrjú parketlögð útleiguherbergi eru á ganginum með lausum skápum. Efri hæð: Gengið er upp tröppur og inn um sér inngang. Forstofan er flísalögð. Parketlagður gangur er inn af forstofu. Baðherbergi er nýlega uppgert og flísalagt með sturtu. Eldhús var gert upp fyrir nokkrum árum og hagnýtt eldri innrétting sem sett var upp samhliða endurbótum. Bæði eldhús og baðherbergi eru nýlega endurnýjuð þar sem settar voru nýjar innréttingar og gólfefni ásamt nýjum tækjum. Nýlega var skipt um alla ofna á efri hæð. Tvö parketlögð herbergi eru innaf eldhúsi. Eitt herbergi við anddyri svo er parketlögð stofa/herbergi þar við hliðina. Síðan er annað parketlagt hornherbergi við hliðina á baðherberginu. Húsið er steinsteypt og byggt árið 1944. Árin 1958 og 1960 var húsið stækkað og því breytt. Viðbygging er hlaðin úr holsteini en gólf og loftplötur er steinsteyptar. Þakefni er upprunalegt, frá 1944 en að hluta frá 1974 vegna stækkunar. Húsið hefur verið málað og búið að framkvæma múrviðgerðir milli steypuskila. Þakrennur eru formaðar ofan í steyptan þakkant kringum húsið, þakrennur þarfnast endurbóta og lagfæringa. Gluggar eru upprunalegir með einföldu gleri og laus hlífðar glerrammi er fyrir nokkrum gluggum. Gluggar og rúður þarfnast endurbóta og lagfæringa. Búið er að endurnýja raflagnir að hluta. Stofntafla fyrir eignina er nýleg.
Einbýlishús
8
251.4m²
88.700.000 kr.
Skoða nánar
Seljudalur 9, 260 Reykjanesbær
Herbergi:Forstofu: er með flísum á gólfi og skáp.Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.Baðherbergi númer 1: með dökkri innréttingu, baðkari og sturtu. Flísar á gólfi og baðplötur frá Þ.Þorgrímssyni á veggjum.Baðherbergi númer 2 með ljósri innréttingu og sturtu. Flísar á gólfi og baðplötur frá Þ.Þorgrímssyni á veggjumSvefnherbergi númer 1: Parketi á gólfi.Svefnherbergi númer 2: með fataskápum. parketi á gólfi.Svefnherbergi númer 3: með fataskápum. Parket á gólfi.Svefnherbergi númer 4: með fataskápum. Parketi á gólfi.Þvottahús með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.Stofa / borðstofa : er í sameiginlegu rými og með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á verönd.Geymsla númer 1 Geymsla tengir saman þvotthús, forstofu og bílskúr .Eldhús númer 1: með fallegri hvítri innréttingu með góðum glugga . Það er innbyggður Ísskápur, frystiskápur, uppþvottavél,örbylgjuofn og bakarofn. Gott skápa og vinnupláss. Parket á gólfi.Eldhús númer 2: með fallegri hvítri innréttingu og gaseldavélGarður til séreignar: með grasi .Útsýni: Frábært útsýni.Verönd: Stórfín verönd snýr í suðvestur hluta til yfirbyggð með heitum potti.Kaldur skúr 15 fm. Við hliðinni á veröndinniBílskúr: rúmgóður með gluggum. Epoxy á gólfi.Bílaplan og stétt er steypt með hitalögn.Mikil lofthæð er í húsinu og innfelld Led lýsing í öllum rýmum.Gólfhiti er í allri eigninni.
Einbýlishús
5
200.2m²
106.800.000 kr.
Skoða nánar
Gerplustræti 25, 270 Mosfellsbær
Björt og rúmgóð 133,1 m2, 4ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Gerplustræti 25 í Helgafellslandi, 270 Mosfellsbæ. Íbúðin er merkt nr. 0105 er með skjólsælan 10+45 m2 sérafnotaflöt með útgengi beint frá stofu. Heildarstærð íbúðarinnar skv. HMS er 133,1 m2 sem skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Stæði í bílageymslu og sérgeymsla í kjallara fylgir eigninni. Birt stærð samkvæmt HMS 133,1 m2.Fasteignamat 2023 er 72.800.000 Komið er inn í Forstofu með fataskápum og flísum á gólfi. Skóskápur fylgir. Hiti er í gólfum í öllum rýmum íbúðarinnar.Úr forstofu er komið inn á gang með parketi á gólfi. Á hægri hönd á gangi er mjög rúmgott baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, viðarlitaðri innréttingu, walk-in sturtu og baðkari.Á vinstri hönd eru tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi.Eldhús og stofa eru í einu rými. Eldhúsið er með fallega viðarlitaða innréttingu með blástursofni, spanhelluborði og háf. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísalagt er á milli efri skápa og borðplötu í innréttingu. Rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi á rúmgóða, sólríka og skjólsæla 10 m2 steypta og 45 m2 timbur-verönd í suður. Gólfsíðir gluggar og útsýni yfir á Úlfarsfell. Parket á gólfum.Þvottahús er á hægri hönd úr stofu og er flísalagt með vask og hillum.Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með fataskápum og parketi á gólfi.Geymslur Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu með dekkjarekkum og sameiginlegum uppskiptum geymslurýmum.Bílastæði merkt B21, rúmgott með uppsettri hleðslustöð frá Ísorku, í bílakjallara fylgir eigninni. Í bílakjallara er einnig þvottastæði með aðgengi að ryksugu, háþrýstidælu o.þ.h. Húsið er nýlegt, snyrtilegt og viðhaldslítið.Húsið er staðsett sunnan við fjallið Helgafell í Mosfellsbæ. Það stendur neðarlega í hverfinu með stórbrotnu útsýni. Helgafellsskóli í næsta húsi. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt er í fallegar gönguleiðir. Allar upplýsingar gefur Anna Gunnardóttir , lgf. á netfanginu [email protected] eða í s. 892 8778.
Íbúðareign
4
133.1m²
86.500.000 kr.
Hvernig sparar þú milljón?

Kaupstaður, ódýrasta fasteignasala landsins, nýtir rafræn samskipti við stofnanir og sjálfvirka skjalagerð til þess að einfalda, straumlínulaga og sjálfvirkja söluferli fasteigna. Niðurstaðan er stórfelld aukning skilvirkni við sölu fasteigna þar sem seljendur njóta stór bættra kjara og aukins vöruúrvals.

Selja með fasteignasala – Gull og Platína

Rafrænt kerfi Kaupstaðar gerir fasteignasölum Kaupstaðar kleift að bjóða framúrskarandi þjónustu fasteignasala á áður óþekktu verði.

Vertu þinn eigin fasteignasali - Grunnur og Plús

Með rafrænu kerfi Kaupstaðar er hverjum sem er fært að selja eigin fasteign með einföldum og öruggum hætti. Rafræna kerfið leiðir seljendur og kaupendur í gegnum hvert skref söluferlisins, allt frá skráningu eignar yfir í fjármögnun yfir í þinglýsingu afsals. Þá er hægt að óska eftir þjónustu fasteignasala á hvaða stigi söluferlisins sem er gegn föstu gjaldi.

Kaupstaður ábyrgist að öll skjöl séu í samræmi við lög og reglur, en seljandi ber sjálfur ábyrgð á að þær upplýsingar sem veittar eru séu réttar.

Hvernig virkar rafræna kerfið?
1

Þú skráir eignina þína til sölu í rafrænu kerfi Kaupstaðar fasteignasölu og sendir hana í auglýsingu með einum smelli á mbl.is og fasteignaleitin.is (DV) auk þess að geta deilt auglýsingu á samfélagsmiðlum.*


2

Væntanlegir kaupendur nota rafrænt kauptilboðskerfi Kaupstaðar fasteignasölu til að bjóða í eignina þína, þar sem þú samþykkir, hafnar eða gerir gagntilboð.


3

Eftir samþykkt kauptilboðs tekur rafræn gagnasöfnun vegna fjármögnunar við, sem lýkur með kaupsamningi.


4

Rafrænt greiðslukerfi heldur utan um greiðslur vegna viðskiptavina.


5

Kerfi fjárhagslegs uppgjörs sem reiknar út loka greiðslu vegna viðskiptanna.


6

Afsal.

*Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn. Ef löggiltur fasteignasali Kaupstaðar (Gull og Platína) sér um söluna þá fer auglýsing af eignin í auglýsingu hjá vísir.is

Algengar spurningar

Greiðsla fyrir notkun forritsins er innheimt þegar að gagnaöflun er lokið, við gerð söluyfirlits.

Athugið að ef hætt er við söluferli fyrir gerð söluyfirlits en eftir að notandi hefur óskað eftir að gögn sem þarf að greiða þriðja aðila fyrir (t.d. veðbandayfirlit) séu sótt mun viðkomandi samt sem áður þurfa að greiða fyrir öflun þeirra, en almennt er kostnaður vegna kaupa á slíkum gögnum hluti af greiðslu fyrir notkun á forritinu og því ekki rukkað fyrir þau sérstaklega. Athugið að engin gögn eru keypt frá þriðja aðila án þess að notanda sé gerð grein fyrir kostnaði vegna þessa og hann samþykki að gögnin séu keypt.

Nei, sé söluferli klárað greiðir þú sölulaun við fyrstu greiðslu frá kaupanda.

Í kaupsamningi er tilgreint hvenær, með hvaða hætti og hversu mikið seljandi fær greitt frá kaupanda. Þegar að komið er að greiðslu millifærir kaupandi eða lánastofnun kaupanda inn á reikning seljanda umsamda upphæð og í framhaldi staðfestir kaupandi á síðunni að hann hafi sent greiðsluna. Þá fær seljandi tilkynningu um að greiðsla hafi borist sem hann staðfestir einnig á síðunni eftir að hafa gengið úr skugga um að greiðsla hafi borist inn á reikning hans.

Standi kaupandi ekki við samninga og greiðir ekki þær greiðslur sem honum ber getur seljandi sett greiðslurnar í innheimtu, til dæmis með aðstoð lögfræðings. Gjarnan er þó hægt að leysa úr málunum með milligöngu fasteignasala sem sáttasemjara og er það almenn venja við fasteignasölu að reyna þá leið áður en lagt er af stað í innheimtu eða dómsmál, en það er þó alfarið á valdi seljanda. Skal bent á að í V. kafla laga nr. 40/2002, um fasteignakaup, er ítarleg umfjöllun um vanefndaúrræði seljanda.

Kaupstaður hefur bæði fasteignasala og lögfræðinga á sínum snærum sem seljendur geta ráðið sér til aðstoðar á föstu tímagjaldi.

Uppsett söluverð er ávallt ákvarðað af seljanda en endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið uppsetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.

Engar fastar reglur eða lög eru um hvernig verðleggja skal fasteign. Seljanda er frjálst að auglýsa eign sína á hverju því verði sem honum þóknast.

Hægt er að fá fasteignasala frá Kaupstað til þess að verðmeta fasteigna gegn föstu gjaldi.

Já! Lög um sölu fasteigna og skipa (nr. 70/2015) kveða á um að löggiltir fasteignasalar megi einir annast milligöngu um sölu fasteigna. Þegar að aðili selur hins vegar sjálfur eigin fasteign er um milliliðalaus viðskipti að ræða sem heimilt er að stunda án aðstoðar fasteignasala.

Nánar:

Önnur grein laga um sölu fasteigna og skipa segir “Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu fyrir aðra um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum sem hafa til þess löggildingu sýslumanns.“ Í umfjöllun um aðra grein laganna í frumvarpi til laganna er hins vegar sagt “Það skal sérstaklega áréttað að ákvæðið kemur ekki í veg fyrir að menn geti sjálfir selt eignir sínar og gengið frá þeirri sölu að fullu.“

Þannig er allur vafi dreginn af um rétt manna til að selja eigin fasteignir án aðkomu fasteignasala.

Einstaklingur sem selur eigin fasteign ber alltaf sjálfur ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.

Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.

Ef í ljós kemur galli á fasteign, er það almennt undir kaupanda komið að sanna tjónið, sem og að sanna hvort seljanda hafi verið kunnugt um gallann og ekki upplýst um hann eða hvort um er að ræða galla sem seljanda var ekki kunnugt um, en telja megi rétt að hann beri ábyrgð á að hluta eða öllu leyti. Það skal sérstaklega bent á að skv. dómum í fasteignamálum er almennt talið að ekki sé um galla á fasteign að ræða ef verðmætið er minna en 10% af söluverði fasteignar. Að öðru leyti er vísað til III. kafla laga nr. 40/2002, um nánari umfjöllun um eiginleika fasteignar, galla, fylgifé o.fl.

Í mörgum tilfellum reynist vel að miðla málum milli aðila, jafnvel með aðstoð lögmanns eða fasteignasala. Dómsmál vegna galla í fasteignum geta verið mjög kostnaðarsöm og tekið langan tíma.

  • Seljandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og hefur svo rafrænan söluferil.

  • Næst leitar seljandi að fasteign sinni í fasteignaleit Kaupstaðar. Þá tekur við upplýsingasöfnunarferill þar sem safnað er öllum viðkomandi upplýsingum um fasteignina fyrir sölu fasteignarinnar. Seljandinn er leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref og síðan ýmist sækir gögn sem þarf fyrir söluna sjálfvirkt til þriðju aðila eða bendir seljanda nákvæmlega á hvaða gagna hann þarf að afla og hvar þau er að finna (t.d. með hlekk á „Mínar síður“ hjá viðkomandi stofnun).

  • Samhliða upplýsingasöfnuninni býður Kaupstaður seljanda upp á að kaupa viðbótar þjónustur sem kunna að gagnast í söluferlinu, til dæmis að fá verðmat á fasteign frá fasteignasala, fá fasteignasala til þess að annast opið hús, fá ljósmyndara til að mynda fasteignina o.fl.

  • Þegar að gagnasöfnun er lokið eru útbúin söluyfirlit, yfirlitssíða fasteignar og sölusíða fasteignar. Seljandinn notar svo yfirlitssíðu fasteignarinnar til þess að skrá opið hús, auglýsa fasteignina til sölu, taka á móti kauptilboðum o.fl.

  • Væntanlegir kaupendur geta farið inn á sölusíðu fasteignarinnar, en hlekkur á hana birtist með öllum auglýsingum fasteignarinnar, sem birtast á öllum helstu fasteignasíðum. Á sölusíðunni sjást allar upplýsingar sem seljandi hefur veitt um eignina og þar getur kaupandi pantað skoðun, fengið upplýsingar um opið hús og gert kauptilboð.

  • Seljandi sér öll kauptilboð í eign sína á yfirlitssíðu fasteignarinnar. Þar getur hann samþykkt, hafnað eða gert gagntilboð. Ef og þegar kaupandi og seljandi hafa samþykkt kauptilboð fer svo af stað ferli þar sem kaupandi tryggir sér fjármögnun ef þarf, í framhaldinu er kvittað undir kaupsamning og fasteignin afhent á umsömdum tíma.

  • Lokaskrefin í ferlinu lúta svo að greiðslum á kaupverði, fjárhagslegu uppgjöri, afsali fasteignar og þinglýsingu. Vel er haldið utan um seljanda og kaupanda í gegnum allt ferlið þannig að báðum aðilum er ljóst hvert næsta skref er á hverjum tíma og hver á að framkvæmda hvað. Þá er síðan jafnframt með form að öllum skjölum og auðveldar skjalagerð með þeim gögnum sem þegar eru skráð á síðuna (t.d. að útbúa kaupsaming, afsal og fjárhagslegt uppgjör), heldur utan um öll gögn og upplýsingar um greiðslur. Á þann hátt veitir síðan allar þær upplýsingar sem þarf til að selja fasteign, sett upp í einföldum og skýrum skrefum, auk þess sem skjalagerð og allt upplýsingaflæði er eins sjálfvirkt og mögulegt er.

Kaupstaður býr sjálfvirkt til auglýsingu sem byggð er á söluyfirliti fasteignarinnar. Rafræna kerfi Kaupstaðar hefur sjálfvirkar tengingar við vefsíðurnar Fasteignaleitin.is og Mbl.is sem gerir seljendum kleift að birta fasteignaauglýsingar á þeim síðum án sérstaks endurgjalds með því einu að smella á takka.

Hver fasteign í sölu hefur sérstaka sölusíðu fyrir fasteignina. Boðið er upp á að deila sölusíðunni beint inn á Facebook, Instagram og Twitter. Jafnframt getur seljandi auglýst fasteignina hvar sem honum hentar með því að afrita hlekkinn á sölusíðuna og birta annars staðar.

Ef löggiltur fasteignasali á vegum Kaupstaðar sér um söluferilinn (Gull og Platínu pakkar) þá fer eignin í auglýsingu inn á visir.is.

Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn.

Það er hluti af skyldum fasteignasala að skoða fasteign, gera söluyfirlit og verðmeta eign. Hins vegar er það alltaf seljandi fasteignar sem hefur lokaorðið um ásett verð fasteignar. Endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið ásetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.

Nei, ljósmyndun er ekki innifalin en einfalt er að bæta henni við fyrir 30.000 kr. m. vsk.

Við bendum á að góðar og skýrar myndir geta haft mikið að segja við sölu fasteignar.

Já, þú getur alltaf óskað eftir auka þjónustu og starfsmenn Kaupstaðar hlakka til að aðstoða þig.

Fasteignasali ber ábyrgð á því að setja þær upplýsingar í söluyfirlit sem seljandi upplýsir hann um. Seljandi ber alltaf ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.

Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.