cta background
Löggiltur fasteignasali selur fyrir þig
frá 329.000 kr.
Seldu sjálf/ur
frá 99.000 kr.

Kaupstaður

Fasteignasala

Samspil úrvals þjónustu og sjálfvirkni
Pakkar
Löggiltur fasteignasali sér um allan söluferilinn en þú sérð um að halda opið hús, sýna eignina og ljósmyndun.
Löggiltur fasteignasali sér um allan söluferilinn, sýnir eignina, heldur opið hús og atvinnuljósmyndari tekur ljósmyndir.
sales background
Kaupstaður kynnir
0
Skoða nánar
Hraunbær 92
110, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
1
1
38.8m²
34.900.000 kr.
Skoða nánar
Kleppsvegur 30
105, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
1
1
57.5m²
44.900.000 kr.
Skoða nánar
Fífumói 9-11
800, Sveitarfélagið Árborg
Íbúðareign
2
1
94.8m²
54.900.000 kr.
Skoða nánar
Framnesvegur 10
230, Reykjanesbær
Íbúðareign
3
0
117.2m²
64.500.000 kr.
Skoða nánar
Melasíða 1
603, Akureyrarbær
Íbúðareign
2
1
82.8m²
38.900.000 kr.
Opið hús : 25. apr. 14:00-14:30
Skoða nánar
Dalsbraut 5
260, Reykjanesbær
Íbúðareign
3
1
103.3m²
65.900.000 kr.
Skoða nánar
Bugðutangi 24
270, Mosfellsbær
Raðhús
1
1
52.4m²
59.900.000 kr.
Skoða nánar
Háeyrarvellir 8
820, Sveitarfélagið Árborg
Einbýlishús
5
2
200.8m²
99.800.000 kr.
Skoða nánar
Skeiðarvogur 73
104, Reykjavíkurborg
Raðhús
5
2
166.0m²
99.900.000 kr.
Skoða nánar
Skipholt 62
105, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
3
2
211.2m²
160.000.000 kr.
Skoða nánar
Þórsmörk 1A
810, Hveragerðisbær
Einbýlishús
7
1
267.7m²
110.200.000 kr.
Skoða nánar
Hraunbær 116
110, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
3
1
123.6m²
70.000.000 kr.
Skoða nánar
Egilsbraut 4
815, Sveitarfélagið Ölfus
Einbýlishús
7
6
281.6m²
180.000.000 kr.
Skoða nánar
Boðagrandi 2
107, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
1
1
84.3m²
69.700.000 kr.
Skoða nánar
Grænaborg 4
190, Sveitarfélagið Vogar
Íbúðareign
2
1
93.8m²
68.600.000 kr.
Skoða nánar
Vesturgata 35A
101, Reykjavíkurborg
Raðhús
4
2
99.4m²
89.900.000 kr.
Skoða nánar
Klapparstígur 30
101, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
1
1
34.3m²
45.900.000 kr.
Skoða nánar
Núpahraun 26
815, Sveitarfélagið Ölfus
Raðhús
4
0
148.4m²
89.900.000 kr.
Opið hús : 25. apr. 17:30-18:00
Skoða nánar
Hverafold 19
112, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
2
1
93.4m²
64.700.000 kr.
Skoða nánar
Drekahraun 4
810, Hveragerðisbær
Einbýlishús
3
1
176.1m²
109.800.000 kr.
Skoða nánar
Eiðistorg 15
170, Seltjarnarnesbær
Íbúðareign
2
2
112.5m²
82.900.000 kr.
Skoða nánar
Hafnargata 79
230, Reykjanesbær
Íbúðareign
1
1
74.0m²
44.900.000 kr.
Skoða nánar
Básbryggja 5
110, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
3
2
154.3m²
97.800.000 kr.
Skoða nánar
Breiðavík 39
112, Reykjavíkurborg
Íbúðareign
2
1
110.5m²
73.500.000 kr.
Hvernig sparar þú milljón?
Kaupstaður, ódýrasta fasteignasala landsins, nýtir rafræn samskipti við stofnanir og sjálfvirka skjalagerð til þess að einfalda, straumlínulaga og sjálfvirkja söluferli fasteigna. Niðurstaðan er stórfelld aukning skilvirkni við sölu fasteigna þar sem seljendur njóta stór bættra kjara og aukins vöruúrvals.
Selja með fasteignasala – Gull, Platína og Rúbín
Rafrænt kerfi Kaupstaðar gerir fasteignasölum Kaupstaðar kleift að bjóða framúrskarandi þjónustu fasteignasala á áður óþekktu verði.
Vertu þinn eigin fasteignasali - Grunnur og Plús
Með rafrænu kerfi Kaupstaðar er hverjum sem er fært að selja eigin fasteign með einföldum og öruggum hætti. Rafræna kerfið leiðir seljendur og kaupendur í gegnum hvert skref söluferlisins, allt frá skráningu eignar yfir í fjármögnun yfir í þinglýsingu afsals. Þá er hægt að óska eftir þjónustu fasteignasala á hvaða stigi söluferlisins sem er gegn föstu gjaldi.
Kaupstaður ábyrgist að öll skjöl séu í samræmi við lög og reglur, en seljandi ber sjálfur ábyrgð á að þær upplýsingar sem veittar eru séu réttar.
process background
Hvernig virkar rafræna kerfið?
Þetta ferli á einungis við ef þú selur sjálfur
1
Þú skráir eignina þína til sölu í rafrænu kerfi Kaupstaðar fasteignasölu og sendir hana í auglýsingu með einum smelli á mbl.is og fasteignaleitin.is (DV) auk þess að geta deilt auglýsingu á samfélagsmiðlum.*
2
Væntanlegir kaupendur nota rafrænt kauptilboðskerfi Kaupstaðar fasteignasölu til að bjóða í eignina þína, þar sem þú samþykkir, hafnar eða gerir gagntilboð.
3
Eftir samþykkt kauptilboðs tekur rafræn gagnasöfnun vegna fjármögnunar við, sem lýkur með kaupsamningi.
4
Rafrænt greiðslukerfi heldur utan um greiðslur vegna viðskiptavina.
5
Kerfi fjárhagslegs uppgjörs sem reiknar út loka greiðslu vegna viðskiptanna.
6
Afsal.
*Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn.
Spurningar
Greiðsla fyrir notkun forritsins er innheimt þegar að gagnaöflun er lokið, við gerð söluyfirlits.
Athugið að ef hætt er við söluferli fyrir gerð söluyfirlits en eftir að notandi hefur óskað eftir að gögn sem þarf að greiða þriðja aðila fyrir (t.d. veðbandayfirlit) séu sótt mun viðkomandi samt sem áður þurfa að greiða fyrir öflun þeirra, en almennt er kostnaður vegna kaupa á slíkum gögnum hluti af greiðslu fyrir notkun á forritinu og því ekki rukkað fyrir þau sérstaklega. Athugið að engin gögn eru keypt frá þriðja aðila án þess að notanda sé gerð grein fyrir kostnaði vegna þessa og hann samþykki að gögnin séu keypt.
Nei, sé söluferli klárað greiðir þú sölulaun við fyrstu greiðslu frá kaupanda.
Í kaupsamningi er tilgreint hvenær, með hvaða hætti og hversu mikið seljandi fær greitt frá kaupanda. Þegar að komið er að greiðslu millifærir kaupandi eða lánastofnun kaupanda inn á reikning seljanda umsamda upphæð og í framhaldi staðfestir kaupandi á síðunni að hann hafi sent greiðsluna. Þá fær seljandi tilkynningu um að greiðsla hafi borist sem hann staðfestir einnig á síðunni eftir að hafa gengið úr skugga um að greiðsla hafi borist inn á reikning hans.
Standi kaupandi ekki við samninga og greiðir ekki þær greiðslur sem honum ber getur seljandi sett greiðslurnar í innheimtu, til dæmis með aðstoð lögfræðings. Gjarnan er þó hægt að leysa úr málunum með milligöngu fasteignasala sem sáttasemjara og er það almenn venja við fasteignasölu að reyna þá leið áður en lagt er af stað í innheimtu eða dómsmál, en það er þó alfarið á valdi seljanda. Skal bent á að í V. kafla laga nr. 40/2002, um fasteignakaup, er ítarleg umfjöllun um vanefndaúrræði seljanda.
Kaupstaður hefur bæði fasteignasala og lögfræðinga á sínum snærum sem seljendur geta ráðið sér til aðstoðar á föstu tímagjaldi.
Uppsett söluverð er ávallt ákvarðað af seljanda en endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið uppsetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.
Engar fastar reglur eða lög eru um hvernig verðleggja skal fasteign. Seljanda er frjálst að auglýsa eign sína á hverju því verði sem honum þóknast.
Hægt er að fá fasteignasala frá Kaupstað til þess að verðmeta fasteigna gegn föstu gjaldi.
Já! Lög um sölu fasteigna og skipa (nr. 70/2015) kveða á um að löggiltir fasteignasalar megi einir annast milligöngu um sölu fasteigna. Þegar að aðili selur hins vegar sjálfur eigin fasteign er um milliliðalaus viðskipti að ræða sem heimilt er að stunda án aðstoðar fasteignasala.
Nánar :
Önnur grein laga um sölu fasteigna og skipa segir “Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu fyrir aðra um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum sem hafa til þess löggildingu sýslumanns.“ Í umfjöllun um aðra grein laganna í frumvarpi til laganna er hins vegar sagt “Það skal sérstaklega áréttað að ákvæðið kemur ekki í veg fyrir að menn geti sjálfir selt eignir sínar og gengið frá þeirri sölu að fullu.“
Þannig er allur vafi dreginn af um rétt manna til að selja eigin fasteignir án aðkomu fasteignasala.
Einstaklingur sem selur eigin fasteign ber alltaf sjálfur ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.
Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.
Ef í ljós kemur galli á fasteign, er það almennt undir kaupanda komið að sanna tjónið, sem og að sanna hvort seljanda hafi verið kunnugt um gallann og ekki upplýst um hann eða hvort um er að ræða galla sem seljanda var ekki kunnugt um, en telja megi rétt að hann beri ábyrgð á að hluta eða öllu leyti. Það skal sérstaklega bent á að skv. dómum í fasteignamálum er almennt talið að ekki sé um galla á fasteign að ræða ef verðmætið er minna en 10% af söluverði fasteignar. Að öðru leyti er vísað til III. kafla laga nr. 40/2002, um nánari umfjöllun um eiginleika fasteignar, galla, fylgifé o.fl.
Í mörgum tilfellum reynist vel að miðla málum milli aðila, jafnvel með aðstoð lögmanns eða fasteignasala. Dómsmál vegna galla í fasteignum geta verið mjög kostnaðarsöm og tekið langan tíma.
Seljandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og hefur svo rafrænan söluferil.
Næst leitar seljandi að fasteign sinni í fasteignaleit Kaupstaðar. Þá tekur við upplýsingasöfnunarferill þar sem safnað er öllum viðkomandi upplýsingum um fasteignina fyrir sölu fasteignarinnar. Seljandinn er leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref og síðan ýmist sækir gögn sem þarf fyrir söluna sjálfvirkt til þriðju aðila eða bendir seljanda nákvæmlega á hvaða gagna hann þarf að afla og hvar þau er að finna (t.d. með hlekk á „Mínar síður“ hjá viðkomandi stofnun).
Samhliða upplýsingasöfnuninni býður Kaupstaður seljanda upp á að kaupa viðbótar þjónustur sem kunna að gagnast í söluferlinu, til dæmis að fá verðmat á fasteign frá fasteignasala, fá fasteignasala til þess að annast opið hús, fá ljósmyndara til að mynda fasteignina o.fl.
Þegar að gagnasöfnun er lokið eru útbúin söluyfirlit, yfirlitssíða fasteignar og sölusíða fasteignar. Seljandinn notar svo yfirlitssíðu fasteignarinnar til þess að skrá opið hús, auglýsa fasteignina til sölu, taka á móti kauptilboðum o.fl.
Væntanlegir kaupendur geta farið inn á sölusíðu fasteignarinnar, en hlekkur á hana birtist með öllum auglýsingum fasteignarinnar, sem birtast á öllum helstu fasteignasíðum. Á sölusíðunni sjást allar upplýsingar sem seljandi hefur veitt um eignina og þar getur kaupandi pantað skoðun, fengið upplýsingar um opið hús og gert kauptilboð.
Seljandi sér öll kauptilboð í eign sína á yfirlitssíðu fasteignarinnar. Þar getur hann samþykkt, hafnað eða gert gagntilboð. Ef og þegar kaupandi og seljandi hafa samþykkt kauptilboð fer svo af stað ferli þar sem kaupandi tryggir sér fjármögnun ef þarf, í framhaldinu er kvittað undir kaupsamning og fasteignin afhent á umsömdum tíma.
Lokaskrefin í ferlinu lúta svo að greiðslum á kaupverði, fjárhagslegu uppgjöri, afsali fasteignar og þinglýsingu. Vel er haldið utan um seljanda og kaupanda í gegnum allt ferlið þannig að báðum aðilum er ljóst hvert næsta skref er á hverjum tíma og hver á að framkvæmda hvað. Þá er síðan jafnframt með form að öllum skjölum og auðveldar skjalagerð með þeim gögnum sem þegar eru skráð á síðuna (t.d. að útbúa kaupsaming, afsal og fjárhagslegt uppgjör), heldur utan um öll gögn og upplýsingar um greiðslur. Á þann hátt veitir síðan allar þær upplýsingar sem þarf til að selja fasteign, sett upp í einföldum og skýrum skrefum, auk þess sem skjalagerð og allt upplýsingaflæði er eins sjálfvirkt og mögulegt er.
Kaupstaður býr sjálfvirkt til auglýsingu sem byggð er á söluyfirliti fasteignarinnar. Rafræna kerfi Kaupstaðar hefur sjálfvirkar tengingar við vefsíðurnar Fasteignaleitin.is og Mbl.is sem gerir seljendum kleift að birta fasteignaauglýsingar á þeim síðum án sérstaks endurgjalds með því einu að smella á takka.
Hver fasteign í sölu hefur sérstaka sölusíðu fyrir fasteignina. Boðið er upp á að deila sölusíðunni beint inn á Facebook, Instagram og Twitter. Jafnframt getur seljandi auglýst fasteignina hvar sem honum hentar með því að afrita hlekkinn á sölusíðuna og birta annars staðar.
Ef löggiltur fasteignasali á vegum Kaupstaðar sér um söluferilinn (Gull, Platínu og Rúbín pakkar) þá fer eignin í auglýsingu inn á visir.is.
Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn.
Það er hluti af skyldum fasteignasala að skoða fasteign, gera söluyfirlit og verðmeta eign. Hins vegar er það alltaf seljandi fasteignar sem hefur lokaorðið um ásett verð fasteignar. Endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið ásetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.
Nei, ljósmyndun er ekki innifalin en einfalt er að bæta henni við fyrir 30.000 kr. m. vsk.
Við bendum á að góðar og skýrar myndir geta haft mikið að segja við sölu fasteignar.
Já, þú getur alltaf óskað eftir auka þjónustu og starfsmenn Kaupstaðar hlakka til að aðstoða þig.
Fasteignasali ber ábyrgð á því að setja þær upplýsingar í söluyfirlit sem seljandi upplýsir hann um. Seljandi ber alltaf ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.
Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.