Seljandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og hefur svo rafrænan söluferil.
Næst leitar seljandi að fasteign sinni í fasteignaleit Kaupstaðar. Þá tekur við upplýsingasöfnunarferill þar sem safnað er öllum viðkomandi upplýsingum um fasteignina fyrir sölu fasteignarinnar. Seljandinn er leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref og síðan ýmist sækir gögn sem þarf fyrir söluna sjálfvirkt til þriðju aðila eða bendir seljanda nákvæmlega á hvaða gagna hann þarf að afla og hvar þau er að finna (t.d. með hlekk á „Mínar síður“ hjá viðkomandi stofnun).
Samhliða upplýsingasöfnuninni býður Kaupstaður seljanda upp á að kaupa viðbótar þjónustur sem kunna að gagnast í söluferlinu, til dæmis að fá verðmat á fasteign frá fasteignasala, fá fasteignasala til þess að annast opið hús, fá ljósmyndara til að mynda fasteignina o.fl.
Þegar að gagnasöfnun er lokið eru útbúin söluyfirlit, yfirlitssíða fasteignar og sölusíða fasteignar. Seljandinn notar svo yfirlitssíðu fasteignarinnar til þess að skrá opið hús, auglýsa fasteignina til sölu, taka á móti kauptilboðum o.fl.
Væntanlegir kaupendur geta farið inn á sölusíðu fasteignarinnar, en hlekkur á hana birtist með öllum auglýsingum fasteignarinnar, sem birtast á öllum helstu fasteignasíðum. Á sölusíðunni sjást allar upplýsingar sem seljandi hefur veitt um eignina og þar getur kaupandi pantað skoðun, fengið upplýsingar um opið hús og gert kauptilboð.
Seljandi sér öll kauptilboð í eign sína á yfirlitssíðu fasteignarinnar. Þar getur hann samþykkt, hafnað eða gert gagntilboð. Ef og þegar kaupandi og seljandi hafa samþykkt kauptilboð fer svo af stað ferli þar sem kaupandi tryggir sér fjármögnun ef þarf, í framhaldinu er kvittað undir kaupsamning og fasteignin afhent á umsömdum tíma.
Lokaskrefin í ferlinu lúta svo að greiðslum á kaupverði, fjárhagslegu uppgjöri, afsali fasteignar og þinglýsingu. Vel er haldið utan um seljanda og kaupanda í gegnum allt ferlið þannig að báðum aðilum er ljóst hvert næsta skref er á hverjum tíma og hver á að framkvæmda hvað. Þá er síðan jafnframt með form að öllum skjölum og auðveldar skjalagerð með þeim gögnum sem þegar eru skráð á síðuna (t.d. að útbúa kaupsaming, afsal og fjárhagslegt uppgjör), heldur utan um öll gögn og upplýsingar um greiðslur. Á þann hátt veitir síðan allar þær upplýsingar sem þarf til að selja fasteign, sett upp í einföldum og skýrum skrefum, auk þess sem skjalagerð og allt upplýsingaflæði er eins sjálfvirkt og mögulegt er.